Bakgrunnur

Frá því Listaháskóli Íslands var stofnaður árið 1998 hefur verði stefnt að því að finna honum stað í miðborg Reykjavíkur, í hringiðu lista- og menningarlífs þjóðarinnar. Með samningi við fasteignaþróunarfélagið Samson Properties ehf. um að reisa hús fyrir skólann á horni Frakkastígs og Laugavegar og með fulltingi menntamálaráðuneytis getur skólinn uppfyllt þetta markmið.

Í líflegu en viðkvæmu miðborgarumhverfinu er mikilvægt að metnaður sé lagður í nýbyggingar og byggt sé af alúð og virðingu við umhverfið sem fyrir er og söguleg einkenni þess. Með það að leiðarljósi var efnt til hönnunarsamkeppni um nýbyggingu Listaháskóla Íslands. Að samkeppninni stóðu Listaháskóli Íslands og Samson Properties í samstarfi við menntamálaráðuneyti og Arkitektafélag Íslands.

Þátttaka í keppninni var góð en alls bárust 20 tillögur. Keppnin var í tveimur þrepum og voru fimm tillögur valdar áfram á síðara þrep. Að lokum stóð tillaga unnin af +Arkitektum í samvinnu við dönsku arkitektastofuna Adept uppi sem sigurvegari og tvær voru verðlaunaðar að auki. Öllum tillögum keppninnar eru gerð skil hér á vefnum og hægt er að kynna sér þær með því að smella á „Samkeppni um byggingu“ hér til vinstri.

Samningur við menntamálaráðuneytið 7. maí 2008

Viljayfirlýsing 7.maí 2008