Byggingarreitur
Nýbygging Listaháskóla Íslands rís á lóð sem afmarkast af Laugavegi, Frakkastíg og Hverfisgötu. Byggingin verður allt að 14.000 m2 að flatarmáli og hýsir starfsemi allra deilda skólans. Í henni verður sameiginlegt list- og þjónusturými, þ.m.t. tónlistarsalur, leikhús, sýningarsalir, fyrirlestrarsalir, bókasafn, veitingasala, verkstæði, vinnustofur, dansstúdíó, kennslustofur, heimasvæði nemenda, æfingaherbergi og skrifstofur.


