Húsrýmisáætlun
Sjá húsrýmisáætlun seinna þreps
Byggingunni er deilt í þrenns konar rými eftir hlutverki og hverjir hafa þar aðgang:
a) Almenningur: innifelur leikhús, tónlistarsal, sýningarsali, fyrirlestrarsali, veitingasölu, bókasafn og aðalskrifstofu - um 32 % af heild.
b) Sameiginleg rými: innifelur samnýtanlegt kennsluhúsnæði og verkstæði - um 25% af heild.
c) Deildir: innifelur vinnustofur, kennslustofur, æfingaaðstöðu og heimasvæði ætluð nemendum og kennurum viðkomandi deildar - um 43 % af heild.
Lífæð - Miðrými:
- Aðkoma í skólann leiðir alla sem þangað sækja beint í svokallaða „lífæð” sem tengir allt húsnæðið. „Lífæðin” er miðrými, sem á einfaldan hátt leiðir gesti að almenningsrýmum, hvort sem er að leikhúsi, tónlistarsal, sýningarsölum, bókasafni eða veitingasal. Skýrar leiðir verða þaðan að öllum verkstæðum og í deildir. „Lífæðin” er þannig fordyri fyrir leikhús, sýningarsali og tónlistarsal, en nýtist jafnframt fyrir fjölmennari fundi og sérstaka viðburði.
Bókasafn:
- Bókasafnið er miðpunktur „lífæðarinnar,” langstærsta listbókasafn þjóðarinnar. Safnið býður upp á sérhæfða þjónustu á sviðum lista.
- Í safninu eru auk venjulegra bóka hundruðir tímarita af öllum sviðum lista, tísku, tíðaranda og menningar, þúsundir hljómplatna, langstærsta nótnabókasafn landsins, mikið safn myndbanda/dvd, myndefni um arkitektúr/ hönnun/myndlist, safn videóverka, upptökur af leiksýningum skólans og annarra leikhúsa í landinu, stórt safn sýningaskráa, leikhandrit og kvikmyndahandrit, og rafrænt aðgengi að stærstu gagnabönkum heims um listir, hönnun, arkitektúr, tísku og menningu.
- Auk safnrýmis fyrir um 60 þús. eintök er gert ráð fyrir sérstöku lessvæði fyrir nemendur, kennara og gesti skólans, hlustunarsvæði, rými fyrir skoðun myndbanda, aðstöðu til ljósritunar og prentvinnslu, auk vinnurýmis fyrir starfsmenn.
Tónlistarsalur:
- Tónlistarsalur er aðgengilegur almenningi, í góðum tengslum við „lífæð” skólans/fordyri. Salurinn getur rúmað allt að 200 manns. Gert er ráð fyrir sérhannaðri hljóðvist sem miðar við þann tónlistarflutning sem fram fer innan skólans.
- Í salnum eru haldnir fjölmargir tónleikar þar sem nemendur og starfsfólk skólans kemur fram. Tónleikar eru ýmist í hádegi, síðdegis eða á kvöldin. Aðrir stærri viðburðir innan skólans eru haldnir í tónlistarsal. Salurinn er leigður út eftir því sem tækifæri gefst.
- Rýmið er einfalt í sniðum, rétthyrnt, með flötu gólfi. Gert er ráð fyrir áheyrendapöllum sem hægt er að brjóta saman, færa til og setja upp með mismunandi hætti. Sviðspallar eru færanlegir. Upptökuaðstaða er mjög fullkomin.
Leikhús:
- Í leikhúsinu eru færðar upp fullbúnar leiksýningar auk þess sem nemendur kynna þar verkefni sín og flytja þar ýmsar dagskrár. Salurinn getur tekið 150 áheyrendur. Rýmið er hrátt og einfalt (‘black box’), með flötu gólfi, og sveigjanlegt með tilliti til niðurröðunar áhorfenda.
- Fullkominn tæknibúnaður er í leikhúsi fyrir flóknar leiksýningar. Ljósabrýr eru í lofti og ljósaloft aðgengilegt frá efri hæðum. Hljóðvistin er sérhönnuð fyrir þann leikflutning og dans sem fram fer innan skólans.
- Í tengslum við leiksalinn eru fullkomin búningsherbergi, auk tæknirýma fyrir ljós og hljóð. Leiksalurinn er í góðum tenglsum við „lífæð” skólans. Gert er ráð fyrir að utanaðkomandi aðilar geti nýtt leikhúsið þegar skólinn þarf þess ekki með.
Sýningarsalir:
- Í byggingunni er einn meðalstór sýningarsalur fyrir myndlist og hönnun. Nemendur fá þar tækifæri til að setja upp sýningar við sömu aðstæður og eru í opinberum sýningarsölum. Sýningar eru skipulagðar allt skólaárið yfir mismunandi langan tíma, allt frá stuttum gjörningum til sýninga í nokkrar vikur. Um er að ræða samsýningar og einkasýningar, sýningar á verkefnum í tengslum við námskeið og rannsóknir, sýningar á verkum kennara og gesta skólans, og eftir atvikum sýningar sem koma utan frá.
- Tvær upphengistofur fyrir hönnun og arkitektúr eru jafnframt í miðrými skólans. Nemendur sýna þar verkefni sín. Um er að ræða fjölbreytilegustu verkefni s.s. í grafískri hönnun, fatahönnun, arkitektúr eða vöruhönnun. Í upphengistofum fer fram umræða um verkefnin, og kennarar og nemendur skoða þau sameiginlega og gagnrýna.
- Salirnir eru einfaldir og skýrir í formi. Efni og lýsing tekur mið af starfseminni. Salirnir eru í beinum tengslum við lífæð skólans. Þegar sýningarsalir eru ekki í notkun fyrir skólann er hægt að bjóða þar upp á sýningar með verkum utanaðkomandi listamanna og hönnuða.
Samnýtanleg kennslurými:
- Í skólanum er „klasi” með fyrirlestrasölum, kennslustofum, tölvustofu, og leikfimissal /dansstúdíói. Nemendur úr öllum deildum nýta þessi rými sem jafnframt eru aðgengileg gestum skólans.
- Í stærri fyrirlestrarsal er gert ráð fyrir 100 sætum. Salurinn er ætlaður fyrir fræðikennslu og fjölmennari fyrirlestra. Jafnframt er gert ráð fyrir að hægt verði að sýna þar kvikmyndir. Minni fyrirlestrarsalur tekur 70 manns í sæti. Hljóðvist er þar sérstaklega hönnuð með það að markmiði að hægt verði að nota salinn fyrir samspilstónleika.
- Gert er ráð fyrir fjórum sameiginlegum kennslustofum sem tengjast í „klasa.” Sú stærsta tekur 50 manns í sæti en sú minnsta 15 manns. Möguleikar á samnýtingu á „klasa” eru margir, ekki síst fyrir endurmenntun og námskeið fyrir almenning, til ráðstefnuhalds og til hvers konar funda og samráðs.
Verkstæðin:
- Skólinn starfrækir fjölda verkstæða sem tengjast náminu og starfsemi skólans. Á verkstæðum fer fram kennsla í smærri hópum og nemendur vinna þar verk sín og finna þeim form í samræmi við sín listrænu markmið.
- Verkstæði fyrir grófari vinnu: trésmíði, járnsmíði, leikmyndasmíði, plastmótun, prentsmíði / grafík, þrykk, taulitun, sníðaverkstæði, og málning. Tækniverkstæði: ljósmyndun, videó, hljóðgerð, hljóðvinnsla, upptökur og tækjasmíði.
Deildir:
- Í „deildum” eru stofur og vinnusvæði þar sem nemendur og kennarar eiga sitt afdrep og hafa aðstöðu til að vinna í einrúmi og í fámennari hópum.
- Í myndlistardeild og í hönnunar- og arkitektúrdeild er um að ræða kennslustofur, vinnusvæði fyrir kennara og heimasvæði nemenda. Á heimasvæðum hefur hver nemandi sitt afmarkaða vinnurými. Heimasvæðin eru langstærsti hluti rýmisins.
- Í leiklistardeild eru fjórir leiktúlkunarsalir, þrjú dansstúdíó, vinnustofa nemenda í fræði og framkvæmd, líkamsræktarsalur, auk smærri kennslustofa og vinnusvæðis fyrir kennara.
- Séraðstaða fyrir tónlistardeild skiptist í „heimastofur” fyrir hljóðfærakennslu og tónsmíðar, einkakennsluherbergi, æfingaherbergi fyrir nemendur, auk kennslustofa fyrir hópkennslu og vinnusvæði fyrir kennara. Þá er gert ráð fyrir sérstakri tilraunastofu fyrir rafræna miðla, slagverk og tónsmíðar, og sérhannaðri stofu fyrir kórsöng og flutning tónlistar fyrri alda.

