Samkeppni um byggingu

Laugavegur er ein rótgrónasta gata Reykjavíkur og í líflegu en viðkvæmu miðborgarumhverfinu er mikilvægt að metnaður sé lagður í nýbyggingar og byggt sé af alúð og virðingu fyrir umhverfinu og sögulegum einkennum þess. Með þetta að leiðarljósi var efnt til hönnunarsamkeppni um nýbyggingu Listaháskóla Íslands í byrjun árs 2008. Keppnin var tveggja þrepa framkvæmdakeppni. Á fyrra þrepi keppninnar áttu höfundar að leggja fram tillögur í mælikvarðanum 1:500. Á síðara þrepi skyldu höfundar gera nánari grein fyrir tillögum sínum og skila gögnum í mælikvarðanum 1:200. Að samkeppninni stóðu Listaháskóli Íslands og Samson Properties í samstarfi við menntamálaráðuneytið og Arkitektafélag Íslands

Markmið keppninnar var að fá fram tilögu sem yrði grundvöllur að hönnun byggingar og hýsti alla starfsemi skólans. Í samkeppnislýsingu keppninnar var lögð áhersla á að þess yrði gætt að nýbyggingar á reitnum mættu vel þörfum skólans og yrðu í háum gæðaflokki hvað varðar fagurfræði og listrænt gildi, hæfðu vel byggð umhverfis keppnissvæðið og féllu að miðborgarumhverfinu. Þá var lögð áhersla á metnaðarfullan arkitektúr og hugmyndaríkar útfærslur, enda byggingar mikilvægur hluti af ásýnd miðborgarinnar. Hönnun skyldi styðja við skipulagsmarkmið og áætlanir Reykjavíkurborgar um miðborgina, til dæmis yrði á jarðhæðum gert ráð fyrir að starfsemi uppfyllti kröfur borgarskipulags um notkun göturýma.

Alls bárust 20 tillögur í samkeppnina. Dómnefnd valdi fimm metnaðarfullar tillögur til að halda áfram á síðara þrep keppninnar. Að lokum stóð tillaga unnin af +Arkitektum í samvinnu við dönsku arkitektastofuna Adept, uppi sem sigurvegari, en önnur verðlaun hlaut Tark Teiknistofan ehf. og þriðju verðlaun arkitektastofan Kurt og Pí

Keppnislýsing

Dómnefnd

Dómnefndarfulltrúi tilnefndur af Listaháskóla Íslands Hjálmar H. Ragnarsson
Dómnefndarfulltrúi tilnefndur af Samson Properties ehf Jón Ágúst Pétursson
Dómnefndarfulltrúi tilnefndur af menntamálaráðuneyti Karitas H. Gunnarsdóttir
Dómnefndarfulltrúar tilnefndir af Arkitektafélagi Íslands Jóhannes Þórðarson og
Anna Kristín Hjartardóttir
Ritari dómnefndar Eyrún Magnúsdóttir
Ráðgjafar dómnefndar Roger Riewe,
prófessor í skipulagsfræðum og arkitektúr
við Háskólann í Graz í Austurríki
Ólöf Örvarsdóttir
skipulagsstjóri Reykjavíkurborgar
Jóhannes Kjarval arkitekt,
verkefnisstjóri þróunaráætlunar miðborgar.
Trúnaðarmaður dómnefndar Haraldur Helgason arkitekt

Sjá yfirlit yfir allar tillögurnar og umsagnir um þær.